Í gærkvöldi sást Lindsay Lohan í annarlegu ástandi fyrir utan skemmtistað í New York. Talið er að hún hafi brotið skilorð sitt með áfengisdrykkju.
Eftir að Lindsay steig út af skemmtistaðnum skjögraði hún á gangstéttinni og átti erfitt með að halda jafnvægi. Á endanum hneig hún niður og hló sig máttlausa á jörðinni.
Í morgun reyndi Lohan að gera lítið úr atvikinu á Twitter-síðu sinni þar sem hún tísti: „Er ekki leyfilegt að detta? Ég er alltaf svo mikill klaufi!“