Cyndi Lauper verður með hljómleika í Hörpunni sunnudaginn 12. júní. Í tilkynningu frá tónleikahaldara segir:
„Eftir meira en 25 ár í bransanum og yfir 30 milljón seldar plötur hefur Cindy Lauper ákveðið að heimsækja Ísland í sumar og halda ...tónleika í stóra sal Hörpunnar (Eldborg) þann 12. júní næstkomandi.
Þar mun Cindy ásamt hljómsveit flytja öll sín helstu lög, eins og t.d. „Girls Just Want To Have Fun“, „True Colors“, „Time After Time“ og „All Through The Night“, sem og flytja lög af nýjustu plötu sinni Memphis Blues en sú plata hefur hlotið frábæra dóma og var m.a. í efsta sæti á Billboard blús-listanum í 14 vikur samfleytt og var kosin blúsplata ársins af samnefndum lista.“