Hin bráðfyndna Tina Fey hefur náð að fela þungun sína algerlega fyrir fjölmiðlum þar til hún mætti í spjallþátt Opruh Winfrey í gærkvöldi.
Fey og eiginmaðurinn Jeff Richmond eiga von á sínu öðru barni saman en þau eiga fyrir hina fimm ára gömlu Alice.
Leikkonan hefur náð að fela óléttubumbuna ansi vel og hefur komið fram á mörgum hátíðum og mætt á fjölda viðburða í Hollywood undanfarna mánuði.