Ozzy Osbourne hefur aldrei verið feiminn að tala um óhóflegt líferni sitt í gegnum tíðina en hefur nú loks viðurkennt skemmdirnar sem eiturlyfin og áfengið hafa valdið.
„Ég man ekki einu sinni hvort Jessica fæddist árið 1971 eða 1972,“ sagði söngvarinn í nýlegu viðtali og átti við frumburð sinn sem fæddist árið 1972.
Áralöng eiturlyfjaneysla Osbourne hefur leitt til minnisleysis og man hann til dæmis ekki eftir að hafa reynt að kirkja eiginkonu sína, Sharon, árið 1989 eftir að hafa drukkið fjórar flöskur af vodka.