Breski tónlistarmaðurinn Sir Paul McCartney hefur trúlofað sig. Konuefnið heitir Nancy Shevell en þau Paul hafa verið saman í tæp fjögur ár.
Stuart Bell, upplýsingafulltrúi McCartneys, sagði nú síðdegis, að vangaveltur fjölmiðla að undanförnu um trúlofun væru ekki úr lausu lofti gripnar. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um málið að öðru leyti en að segja að allir væru mjög ánægðir fyrir hönd McCartneys.
McCartney, sem verður 68 ára á árinu, hefur tvívegis verið kvæntur áður. Fyrsta kona hans, Linda, lést af völdum krabbameins árið 1998 og hann skildi við aðra konu sína, fyrirsætuna Heather Mills, árið 2008.
Nancy Shevell, sem er 48 ára, er bandarísk og situr m.a. í stjórn almenningssamgangnastofnunar New York ríkis.