David Beckham slapp ómeiddur úr árekstri á fjölfarinni hraðbraut í Los Angeles i gær. Cadillac bíll Beckhams lenti í árekstri við bíl sem hafði bilað á einni akrein hraðbrautarinnar. Ökumaður þess bíls slasaðist og var fluttur á sjúkrahús, en var ekki talinn alvarlega meiddur.
Talskona Beckhams sagði að hann hafi hvorki verið ákærður né handtekinn eftir umferðarslysið. Beckham varð ekki meira um en svo að hann fylgdist með fyrrum liði sínu AC Milan vinna Ítalíubikarinn í dag. Óskaði hann fyrrum félögum sínum til hamingju á Facebook síðu sinni.