Nicollette Sheridan, sem fór með hlutverk Edie Britt í þáttunum um hinar aðþrengdu eiginkonur, hefur stefnt framleiðendum þáttanna fyrir að hafa látið persónu hennar deyja.
Edie Britt var látin hverfa úr þáttunum með því að fá banvænt raflost. Sheridan segist hafa átt í útistöðum við framleiðendur þáttanna, sem hafi ákveðið að leysa ágreininginn með því að skrifa hana út úr þáttunum.
Hún krefst þess að Edie Britt verði endurlífguð eða að henni verði greiddar miskabætur fyrir dauða hennar.