Christina Aguilera sést vanalega með uppsett hár, eldrauðan varalit og í mjög þröngum kvenlegum fötum en hún ákvað að hugsa út fyrir rammann um helgina.
Söngkonan sást fyrir utan veitingastað í New York ásamt kærastanum Matt Rutler og var nær óþekkjanleg án rauðu varanna. Aguilera var klædd í gráan leðurjakka, köflótta síða skyrtu og leggings.