Fyrsta sjálfsmynd listamannsins Andy Warhol hefur verið seld á uppboði Christie's í New York fyrir 38,4 milljónir dala, sem samsvarar 4,4 milljörðum kr. Myndin er frá árunum 1963-1964.
Ekki hefur fengist jafn hátt verð fyrir sjálfsmynd eftir Warhol. Salan vakti mesta athygli á uppboðinu þar sem nútímalistarverk voru boðin upp. Heildarfjárhæð seldra verka á uppboðinu námu 301,7 milljónum dala (um 34 milljarðar kr.)
Alls voru seld átta verk eftir Warhol fyrir 91 milljón dala (10 milljarða kr.).
Alls voru 65 verk boðin upp hjá Christie's og tókst að selja 62 þeirra. Ekki hefur Christie's tekist að selja listaverk fyrir jafn háa fjárhæð frá því í maí 2008.