Fagnaðarlæti Hrafnhildar Halldórsdóttur, sem lýsir Eurovisionkeppninni í Düsseldorf fyrir Ríkisútvarpið, eru nú orðinn að hringitóni fyrir farsíma sem hægt er að hlaða niður á vefsíðu símafyrirtækisins Vodafone.
Hrafnhildur gat ekki leynt gleði sinni og fagnaði með miklu öskri þegar Vinir Sjonna komust áfram í aðalkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld. Hrafnhildur sagðist síðan vart mega mæla og afsakaði sig með því að hún þyrfti að hætta að tala, því að hún væri alveg að fara að gráta.
Hringitónninn