Bandaríska leikkonan Christina Hendricks sem slegið hefur í gegn í sjónvarpsþáttunum Mad Men þykir einstaklega glæsileg - þá ekki síst voldugur barmur hennar sem hún er einkar stolt af.
Christina var spurð að því í viðtali á dögunum hvort að barmurinn væri „ekta" og kvað hún svo vera. Hún sagðist jafnframt ekki skilja hvernig einhverjum dytti í hug að svo væri ekki þar sem þau líti augljóslega út fyrir að vera frá náttúrunnar hendi. Sjálf segist hún ánægð með föngulegan vöxt sinn - eina vandamálið sé að finna fatnað við hæfi sem að klæði hana vel en hún hafi lært að elska líkama sinn með árunum.