Pippa Middleton ákvað að taka því rólega og eyddi helginni á heimili foreldra sinn í Bucklebury, sem er sveitasetur fjölskyldunnar.
Það sem vakti athygli er að hennar fyrrverandi, Alex Loudon, var með í för. Parið hætti saman fyrir nokkrum vikum eftir að hafa deitað í rúmlega ár.
Us Weekly greinir frá því að Pippa, sem er 27 ára, hafi eytt föstudagskvöldinu með Alex. Hann sótti hana þar sem hún var að útrétta í bænum og keyrðu á sveitasetrið sem sem þau eyddu helginni. Lítur ekki út fyrir að ástarblossinn sé enn til staðar?