Nýjasta myndband Rihönnu hefur verið mikið gagnrýnt, sérstaklega af foreldrum sem telja skilaboðin í myndbandinu afskaplega óviðeigandi fyrir börn. Í myndbandinu sést Rihanna skjóta mann sem hafði nauðgað henni.
Sjálf segir Rihanna að hún sé ekki að sýna neitt annað en blákaldan raunveruleika í myndbandinu. Meðal þess sem gagnrýnendur hafa bent á er að Rihanna er sjálf fórnarlamb heimilisofbeldis og í stað þess að myrða árásarmanninn í myndbandinu ætti hún að koma þeim mikilvægu skilaboðum á framfæri til fórnarlamba ofbeldis að leita sér hjálpar. Þess í stað geri hún manndráp að vænlegum kosti.
Rihanna sjálf gefur lítið fyrir gagnrýninna og segir það í verkahring foreldra að ala upp afkvæmi sín. Hún sé rokkstjarna ekki foreldri!