Ridley Scott, leikstjóri og framleiðandi, vinnur nú hérlendis við tökur á nýjustu kvikmynd sinni, Prometheus.
Í umfjöllun um kvikmyndatökuna í Morgunblaðinu í dag segir Scott, að náttúran á Íslandi hafi gert gæfumuninn. Hún hafi ákveðinn karakter og umhverfið sé villtara en annars staðar.