„Það eru þónokkrir Eyjamenn búnir að bjóðast til að ættleiða mig, ekki bara mig heldur líka vinkonur mínar,“ segir ein Þjóðhátíðarmærin við fréttamann MonitorTV í myndskeiðinu hér að ofan. Eins og sjá má var nóg um að vera í Herjólfsdal í gærkvöldi en á meðal þeirra sem Monitor-menn rákust á voru tveir félagar í flagarabúning ásamt söngfuglum í Stórasta tjaldinu.