Breski rokkarinn og vandræðagemsinn Pete Doherty er sleginn yfir andláti Amy Winehouse, en þau voru nánir vinir.
Þau höfðu þekkst frá árinu 2007 og munu hafa stutt hvort annað í lífsins ólgusjó og í baráttunni við fíknina.
„Ég var í rúminu þegar ég fékk fréttirnar af dauða hennar,“ segir Doherty í viðtali á fréttavefnum Orange News. „Einhver vakti mig, ég gat ekki meðtekið þetta, ég get það ekki ennþá.“
„Það er næstum því ómögulegt að átta sig á því sem hefur gerst. Það er erfitt að hugsa sér að hún sé ekki lengur á meðal okkar,“ segir Pete Doherty.