Mette Marit, krónprinsessa Noregs, þykir einstaklega falleg og tignarleg kona. Hún mætti með manni sínum, Hákoni prinsi, í veislu í Osló í kvöld sem haldin var til heiðurs Jakobi Zuma, forseta Suður-Afríku, en hann er þar í opinberri heimsókn.
Zuma var í fylgd með fimmtu konu sinni, Tobeka Zuma. Það var hins vegar Mette Marit sem átti sviðið í kvöld.