Kryddpían Melanie B., fyrrum tengdadóttir Íslands, eignaðist stúlkubarn í morgun en fyrir átti hún dæturnar Phoenix, 12 ára, og Angel, 4 ára, auk þess að vera stjúpmamma Giselle, 6 ára, en hún er dóttir núverandi eiginmanns Mel, Stephen Belafonte.
„Loksins er barnið komið í heiminn,“ tístaði Kryddpían í morgun. „Það leið næstum því yfir Stephen, Phoenix öskraði og ég hló svo mikið að krakkinn skaust út!!! Hún er stórkostleg!!“
Mel, eins og hún er kölluð, tókst þó að slíta sig frá litla krúttinu til að tísta aftur stuttu seinna, í þetta sinn til eiginmannsins. „Ég hélt ekki að það væri mögulegt en ég elska þig ennþá meira núna ástin mín, við eigum sannarlega stórkostlega fjölskyldu.“