Íslensk ungmenni fjölmenntu í göngu niður Laugaveg og enduðu á Ingólfstorgi. Ekki voru ungmennin að mótmæla heldur að óska eftir því að poppstirnið Justin Bieber kæmi til Íslands.
Ekki er vitað hvort Bieber mun þekkjast boð þeirra en pilturinn er ein helsta stjarnan í poppbransanum í dag þrátt fyrir ungan aldur en hann er fæddur árið 1994 í Kanada.