Selena Gomez elskar kærastann sinn, Justin Bieber, ákaflega heitt ef marka má nýjasta húðflúrið hennar. Hún er búin að láta húðflúra nafnið hans á úlnliðinn á sér og er bara mjög ánægð með gjörðir sínar.
Allar konur á fertugsaldri geta örugglega staðfest að það sé ekki gáfulegt að fá sér húðflúr fyrir tvítugt og alls ekki með nafni kærasta.
Hún sýndi húðflúrið í Las Vegast í gærkvöldi þegar hún tróð upp á Sin City Mandalay Bay.
Mail Online birti myndir af henni með nýja húðflúrið í dag. Hægt er að skoða myndirnar HÉR.
Svo kom reyndar á daginn að ekki var um varanlegt húðflúr að ræða heldur einnota. Hún þarf því ekkert að óttast að vera brennimerkt barnastjörnunni á elliheimilinu.