Leikkonan Scarlett Johansson er í öngum sínum þessa dagana þar sem að brotist var inn í síma hennar á dögunum. Síminn geymdi þó ýmislegt fleira en bara símanúmer því þar var að finna nektarmyndir af henni sem heimildir herma að hafi lekið á netið í gærmorgunn.
Myndirnar eru að því virðist teknar af henni sjálfri og er hún skiljanlega miður sín og hefur kært þjófnaðinn til lögreglunnar.
Skaðinn er hins vegar skeður og myndirnar komnar í umferð - aðgengilegar hverjum þeim sem kærir sig um.