Charlie Sheen er fluttur heim til móður sinnar og kvartar ekki því hún sé svo ógurlega skipulögð. Árið hefur verið svolítið strembið hjá leikaranum því hann var bæði rekinn úr þáttunum Two and a Half Men og svo skildi hann við eiginkonu sína. Á tímabili átti hann tvær kærustur sem bjuggu hjá honum á heimili hans í Los Angeles. Nú er gamanið búið því móðir hans er búin að taka stjórnina og skipaði honum að flytja heim til sín.
Samkvæmt heimildum National Enquirer er hann alsæll með að búa heima hjá mömmu sinni.
„Charlie elskar í raun og vera að búa hjá mömmu sinni. Hún er mjög skipulögð, eldar ofan í hann og passar upp á að hann borði rétt. Auk þess sér hún um að það sé ekkert í rugl í gangi á meðan hann er að endurreisa líf sitt.“
Mamma hans er enginn kettlingur og er alls ekki blind á ástand sonar síns. Fyrr á árinu ræddi hún opinskátt um fíkniefnavandamál hans og í framhaldinu fór hún að sækja Al Anon fundi til að ná áttum.
„Mamma hans veit nákvæmlega hvað hún þarf að gera til að halda honum edrú.“