Bandaríska söngkonan og fyrsti Idol-sigurvegarinn, Kelly Clarkson, segist vera búin að fá upp í kok af óheppni sinni í ástamálum. Það séu upp til hópa algjörir hálfvitar sem bjóði henni út.
„Þetta er Idol-heilkennið. Því meiri hálfvitar - því meira sjálfstraust,“ segir Clarkson sem þó hefur ekki gefið upp vonina um að finna hinn eina rétta.