„Ein af hugmyndunum með þættinum Gott, hollt og ódýrt, er að spara fólki bæði tíma og peninga með því að hafa aðgengilegan matseðil fyrir vikuna og innkaupalista“, segir Helga G. Halldórsdóttir sviðsstjóri innanlandsdeildar Rauða krossins en þátturinn er sýndur á MBL Sjónvarpi. Í þættinum eru kynntir hollir og ódýrir réttir fyrir fjóra á undir 2000 krónum.
„Skipulag í eldhúsinu skiptir miklu máli og þetta er okkar framlag til að auðvelda fólki að spara með því skipuleggja matseld og innkaup vikunnar. Fólk tekur þáttunum einstaklega vel þannig að við vildum ganga skrefið til fulls, segir Helga.
Matseðilinn og innkaupalistann má nálgast hér.
Hægt er að horfa á þættina hér.