Breski leikarinn Hugh Grant er orðinn faðir. Þetta staðfesti kynningarfulltrúi Grants í dag en vildi hins vegar ekki upplýsa um nafn barnsmóður hans. Svo virðist sem Grant hafi átt í leynilegu sambandi og barneignir ekki á dagskránni.
Þetta er fyrsta barn leikarans sem er 51 árs, og er um stúlku að ræða. Fréttaveitan AFP hefur eftir Carrie Gordon, kynningarfulltrúa Grants, að komist hafi verið að samkomulagi við barnsmóðurina og allt sé í góðu á milli hennar og Grants. Hann muni veita henni þann stuðning sem hún þurfi.