Tónlistarmaðurinn James Taylor er væntanlegur til landsins til að halda tónleika, en þeir munu fara fram þann 18. maí nk. í Hörpu.
Fram kemur í tilkynningu frá Concert að Taylor, sem sé einhver þekktasti söngvari og lagahöfundur 20. aldarinnar, hafi öðlast frægð á áttunda áratugnum með lögum eins og „You’ve Got A Friend“ og „Fire and Rain“.
Miðasala hefst á Harpa.is og í síma 528 5050 mánudaginn 19. desember.