Angelina Jolie og Brad Pitt hafa sjaldan tíma til að standa saman yfir pottunum og elda. Þau gerðu þó undantekningu á því yfir þakkargjörðarhátíðina og matreiddu í sameiningu sinn fyrsta kalkún. Fram til þessa hafa þau auðveldað sér lífið og fengið til sín matreiðslumenn til að sjá um veislumáltíðir en í þetta sinn langaði þau til að spreyta sig sjálf. Þau eru alsæl með útkomuna og mjög stolt af því hvernig til tókst.
Jolie var gestur þáttarstjórnandans Anderson Cooper á CNN og tjáði sig þar um þennan nýja áfanga í lífi þeirra hjóna. Þau hefðu ákveðið að sjá algjörlega sjálf um eldamennskuna og væru stolt af því hvað máltíðin hefði heppnast vel. Jolie sagðist síðustu árin nokkrum sinnum hafa reynt að elda sjálf fugl en gaf í skyn að eldamennskan hefði ekki verið upp á marga fiska.
Jolie og Pitt eiga sex ung börn og þrátt fyrir að vera mikið á ferð og flugi reynir fjölskyldan alltaf að setjast niður saman yfir kvöldmatnum. Börnin fylgdust að sögn Jolie spennt með foreldrunum spreyta sig við þakkargjörðarmáltíðina en þau Pitt hefðu staðið upp fyrir haus í eldhúsinu allan daginn og látið eins og þau vissu upp á hár hvað þau væru að gera.