Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur óskað eftir skilnaði við eiginmann sinn, Cal Worthington, samkvæmt frétt TMZ-slúðurvefjarins.
Anna Mjöll og Worthington gengu í hjónaband hinn 9. apríl síðastliðinn. Worthington er milljarðamæringur en hann er einn þekktasti bílasali Bandaríkjanna.
Cal Worthington er 91 árs og því fimmtíu árum eldri en Anna Mjöll sem er fædd árið 1970. Brúðkaupið vakti mikla athygli víða um heim og þá ekki síst á Íslandi.
Í frétt TMZ kemur fram að Anna Mjöll hafi óskað eftir því í skilnaðarpappírunum að fá fjárhagslegan stuðning frá eiginmanninum fyrrverandi.