Ætlar aldrei aftur að byrja með neinum

Hjónabandi Sinead O'Connor og Barrys Herridges er lokið aftur eftir að þau hættu við að skilja í síðustu viku. Parið gifti sig í desember og nokkrum dögum síðar vildi hún skilja við hann.

Parið náði svo saman á ný eftir að hafa notið ásta og í framhaldinu hættu þau við að skilja. Nú berast þær fréttir að hjónin séu ekki sátt og ætli að halda hvort í sína áttina.

Hún talar um skilnaðinn á heimasíðu sinni. Þar segir hún að hún hafi ekki góð áhrif á eiginmann sinn og því sé betra að þau haldi hvort í sína áttina. „Ég á við veikindi að stríða og þarf að takast á við þau,“ sagði söngkonan.

Connor hefur tvisvar verið gift áður og segist vera búin að fá nóg af ástarævintýrum. „Ég mun ekki nenna að tengjast annarri manneskju tilfinningaböndum. Ég vil bara fá að vera eins og ég er, eins og Bridget Jones myndi segja,“ sagði söngkonan. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup