Daniel Craig og Rachel Weisz eru sögð ætla að punga út 11,5 milljónum dollara í nýtt heimili.
Íbúðin er þriggja herbergja og þriggja baðherbergja og staðsett í SoHo, New York. Er hún jafnframt rúmir 400 fermetrar með flottum 185 fermetra þakgarði, svokölluðum. Frá þessu er greint í New York Post.
Á sama tíma greina borgarskjöl frá því að Rachel hafi verið að selja gamla húsið sitt en kaupandinn er hennar fyrrverandi maki, leikstjórinn Darren Aronofsky. Leikstjórinn, sem á hinn fimm ára son Henry með Rachel, borgaði 2,52 milljónir dollara fyrir húsið en saman keyptu þau húsið á 3,4 milljónir árið 2005.