Norska skáldkonan Merethe Lindstrøm fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012 afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands nú fyrir stundu, en þetta er í fyrsta sinn sem tilkynnt er hver hljóti verðlaunin og þau afhent sama dag. Verðlaunin fær Lindstrøm fyrir skáldsöguna Dager i stillhetens historie sem kom út á norsku á síðasta ári og hlaut meðal annars bókmenntaverðlaun gagnrýnenda í Noregi á síðasta ári.
Merethe Lindstrøm fæddist Bergen 1963, ólst upp Hammerfest, Stord og Høland, en býr nú í Ósló. Fyrsta bók hennar var smásagnasafnið Sexorcisten og andre fortellinger sem kom út 1983, en síðan hafa komið út nokkur smásagnasöfn, skáldsögur og ein barnabók.
Smásagnasafnið Gjestene, sem kom út 2007, var tilnefnt til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2008. Dager i stillhetens historie segir frá gömlum hjónum, Evu og Símoni, þar sem Símon þjáist af elliglöpum. Hjónin hafa ekki rætt mikið saman í gegnum árin og svo komið að Símon er nánast hættur að tala. Það er helst að þau ræða um hversdagslega hluti, en fortíðin er sem lokuð bók og hvorugt þeirra hefur sagt dætrunum þrem frá fortíð Símons.
Dæturnar leggja foreldrum sínum lið sem mest þær mega, en ráða síðan stúlku frá Litháen, Marija, sem verður fljótlega ómetanleg hjálparhella, en harkalegt tilsvar verður til þess að glufa opnast i þagnarmúr fortíðarinnar og smám saman birtast óþægileg sannindi sem verða til þess að brestir koma fjölskyldumyndina.
Víkingur Heiðar Ólafsson kom fram á athöfninni, en hann var tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009. Víkingur Heiðar lék tvö íslensk lög fyrir verðlaunaafhendinguna, Sofðu, sofðu góði og Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns.