Hann klæðist skyrtu og gallabuxum og dansar eins og enginn sé morgundagurinn við Jailhouse Rock Elvis Presleys. Pilturinn er þó aðeins tveggja ára og er orðinn stórstjarna á netinu. Að fjörlegum dansinum loknum hneigir hans sig af innlifun og fær gríðarlegt lófaklapp að launum.
Drengurinn heitir William Stokkebroe en foreldrar hans eru dansararnir Kristina og Peter Stokkebroe. Hann fylgist oft með æfingum foreldra sinna og danshópsins sem þau tilheyra og kom svo fram og sýndi hvað í honum býr á danshátíð í Danmörku 2. mars síðastliðinn. Horft hefur verið á myndbandið á YouTube yfir níu milljón sinnum.