Upptökur á annarri plötu Skálmaldar, Börnum Loka, hófust í dag, föstudaginn 13. og er útgáfa áætluð í haust.
Efni af nýju plötunni hefur þegar hljómað á tónleikum undanfarið en haldið verður upp á upptökulok með stórtónleikum á Nasa daginn fyrir uppstigningardag, þann 16. maí næstkomandi.
Upptökustjóri Skálmaldar er sem fyrr Axel „Flex“ Árnason og er áhugasömum bent á að fylgjast með upptökuferlinu á Facebooksetri sveitarinnar.