Ingó Geirdal ákvað að verða töframaður þegar hann var ekki nema sex ára gamall. Núna er hann orðinn fullorðinn, og barnadraumurinn orðinn að veruleika. Hann hefur ferðast heimshornanna á milli til þess að sýna töfrabrögð og ætlar að gera slíkt hið sama í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn, 13. maí. Hægt er að nálgast miða á sýninguna á www.midi.is en eins og sjá má í myndskeiðinu er Ingó ótrúlega lunkinn með töfrabrögðin