„Ég er ákaflega glöð að vera stödd hér í Bakú,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, fulltrúi Íslands í Evróvisjón, á blaðamannafundi í Bakú í Aserbaídsjan í morgun.
Haft er eftir Gretu Salóme á vefsíðunni en.trend.az að hún telji Bakú afar fallega borg, ekki síst vegna allra nýju og háu bygginganna sem prýða borgina.
Íslenska laginu, Never forget, er spáð góðu gengi, en samkvæmt spám á vefsíðunni Oddschecker, þar sem niðurstöður úr helstu veðbönkum eru teknar saman, mun Ísland lenda í sjöunda sæti.