Allt lítur út fyrir að Biblían verði helsta sögusvið Hollywood á næstu árum ef eitthvað er að marka þann orðróm sem í gangi er. Bæði Steven Spielberg og Ridley Scott vinna að biblíuverkefnum um þessar mundir.
Þá hefur sá orðrómur komist á kreik að Will Smith hafi staðfest hlutverk í The Redemption of Cain. Handrit myndarinnar er skrifað af Caleeb Pinkett en hann er yngri bróðir Jada Pinkett Smith, eiginkonu Wills Smiths.