Danska vikublaðið Se og Hør ætlar að birta myndir af Kate hertogaynju af Cambridge berbrjósta þrátt fyrir niðurstöðu fransks dómstóls í gær um að banna endurbirtingu myndanna í franska blaðinu Closer.
Á vef Berlingske kemur fram að í næsta blaði Se og Hør verði sextán blaðsíður lagðar undir myndir af Kate þar sem hún berar brjóstin í sumarleyfi nýverið í Suður-Frakklandi. Samkvæmt Berlingske er Se og Hør eina blaðið í Danmörku sem hefur ákveðið að birta myndirnar.
Ritstjóri Se og Hør, Kim Henningsen, segir að lesendur blaðsins hafi mikinn áhuga á lífi kóngafólksins og því sé hann afar stoltur af því að blaðið hafi fengið réttinn á að birta myndirnar af verðandi drottningu Bretlands berbrjósta. Myndir sem allur heimurinn tali um.