Barn undir belti?

Blake Lively er sögð eiga von á barni. Leikkonan og unnustinn, leikarinn Ryan Reynolds, giftu sig svo lítið bar á í byrjun mánaðarins og nú eru samstarfsfélagar leikstjörnunnar sannfærðir um að hún gangi með barn undir belti. Það skýri af hverju þau gengu svo fljótt í hjónaband, eftir aðeins tæplega ársgamalt samband.

Lively sneri aftur til vinnu í New York í byrjun vikunnar við sjónvarpsþáttinn vinsæla The Gossip Girl. Samstarfsfólk hennar telur engan vafa leika á því að hún eigi von á sér.

„Blake er vön að passa mjög vel hvað hún lætur ofan í sig,“ er haft eftir heimildamanni dagblaðsins New York Post, sem kemur að gerð sjónvarpsþáttanna.

„Núna borðar hún greinilega mun meira en áður. Við sem vinnum við Gossip Girl erum handviss um að hún sé ólétt og fylgjumst mjög vel með þróun mála. Nú beinast allra augu að maganum á Blake.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Unnur Lilja Aradóttir
3
Torill Thorup
4
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir