Tónlistarmennirnir Bruce Springsteen og Jon Bon Jovi eru meðal þeirra sem tóku þátt í styrktartónleikum fyrir fórnarlömb fellibylsins Sandy á föstudagskvöldið en þeir eru bæðir bornir og barnfæddir í New Jersey. Eins tók Christina Aguilera lagið en hún er fædd á Staten Island.
Á fréttavef Reutes kemur fram að tónleikarnir hafi verið sýndir beint í sjónvarpi en auk þeirra komu þau Sting, Billy Joel, Jimmy Fallon, Steven Tyler, Mary J. Blige, Tina Fey, Jon Stewart, Whoopi Goldberg, Kevin Bacon og Danny DeVito fram í þættinum.
Í þættinum, sem var sýndur á NBC, sagði Aguilera að hún hafi fæðst á Staten Island. „Fyrir fjórum dögum fór fellibylurinn Sandy þar yfir og eyðilagði eyjuna.“
Aguilera hvatti fólk til þess að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að veita öðrum aðstoð og ekki mætti gleyma neinum.