Til að gleðja augað og vekja athygli á umhverfisvænum samgöngum hafa borgaryfirvöld í Róm á Ítalíu skreytt einn rafmagnsstrætisvagn borgarinnar með ótal ljósum. Vissulega er vagninn jólalegur en sumum finnst nóg um ljósið sem frá honum stafar.
Vagninn mun aka um miðborg Rómar þar til 10. janúar.