Sögðu rauða hárið til trafala

Christina Hendricks verður að teljast ein af glæsilegustu konum í …
Christina Hendricks verður að teljast ein af glæsilegustu konum í Hollywood. AFP

Ofurbomban Christina Hendricks segir að starfsmenn umboðsskrifstofu hennar hafi  gagnrýnt hana í fyrstu, eftir að hún litaði ljósa lokka sína rauða fyrir ákveðna myndatöku í upphafi ferilsins. Segist hún hins vegar fljótlega hafa ákveðið að halda hárlitnum enda hrönnuðust verkefnin inn hjá henni.

„Eftir að ég litaði mig rauða mátti ég ekki lita hárið aftur í tvo daga en þurfti engu að síður í prufur [fyrir myndatökur],“ sagði Mad Men-leikkonan í samtali við vefsíðuna Femalefirst  á dögunum. Segist hún fljótlega hafa áttað sig á að rauðu lokkarnir virkuðu vel en á þessum tveimur dögum fékk hún strax þrjú verkefni.

Þakkar hún rauða hárinu einnig frama sinn í Hollywood, m.a. hlutverkið í Mad Men og í kvikmyndinni Drive frá 2011.

„Ég held að það [rauðu lokkarnir] skeri mann úr. Fólk man frekar eftir manni þar sem margir eru um hituna. Þetta hjálpar,“ bætti hún við létt í bragði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup