Kim Kardashian hefur í fyrsta sinn tjáð sig um óléttuna við fjölmiðla. Segir hún meðgönguna ekkert grín og allt annað en auðvelda.
„Ég myndi ekki segja að þetta hafi verið auðvelt... en ég hef sloppið við morgunógleðina,“ sagði raunveruleikastjarnan í viðtali við Entertainment Tonight-sjónvarpsþáttinn á dögunum og þakkaði sínu sæla fyrir það síðastnefnda. Slær hún ekki slöku við þrátt fyrir óléttuna en hún stýrði einkapartíi fyrir ónefndan aðila í Las Vegas á nýársdag.
Segist Kin ekki geta tekið undir með þeim konum sem segja meðgönguna skemmtilega og njóta hennar. „En þetta hlýtur að verða auðveldara og þægilegra héðan í frá... þetta er bara spurning um að venjast þessu,“ bætti hún við.
<strong>Langar í sushi</strong>Kim, sem gengin er um þrjá mánuði með barn þeirra Kanyes West, segist þegar farin að verða vör við sterka löngun í ákveðin matvæli.
„Ég þrái sushi, en veit að það er á bannlistanum. Svo ég borða mikið af gulrótum og selleríi,“ sagði raunveruleikastjarnan.
Hægt er að sjá viðtal Entertainment Tonight við Kim hér.