Gríðarstór bláuggatúnfiskur seldist fyrir 1,8 milljónir Bandaríkjadollara, eða tæpar 234 milljónir íslenskra króna á Tsukiji-fiskmarkaðnum í Japan í dag.
Fiskurinn er engin smásmíði, en hann vegur 222 kíló. Hann veiddist undan strönd borgarinnar Oma, sem er í norðurhluta Japans.
Bláuggatúnfiskur er vinsæll til neyslu meðal Japana, sem snæða 75% af öllum fiski þessarar tegundar sem veiðist í heiminum.