Tillaga að áframhaldandi samstarfi Reykjavíkurborgar og Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, liggur fyrir og verður borin upp á næsta fundi menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar hinn 25. febrúar, samkvæmt yfirlýsingu frá RIFF.
Kvikmyndahátíðin er að mestu fjármögnuð með styrkjum og höfðu komið fram fréttir um að menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar hygðist ekki styrkja hátíðina frekar.
Í yfirlýsingu frá Hrönn Marínósdóttur, stjórnanda RIFF, nú síðdegis segir að kvikmyndahátíðin hafi vaxið hratt á undanförnum árum og reksturinn hafi þar af leiðandi sífellt orðið umfangsmeiri og þyngri, „en RIFF hefur í gegnum tíðina vakið athygli kvikmyndaáhugafólks hér á landi og erlendis“.
RIFF greiddi laun nefndarmanna sem starfaði á vegum hátíðarinnar og Reykjavíkurborgar við að fara yfir framkvæmd og rekstur hátíðarinnar, samkvæmt yfirlýsingunni. Í kjölfar þeirrar vinnu hefur hátíðin átt gott samstarf við Einar Örn Benediktsson, formann menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, um endurskoðun á innra skipulagi hátíðarinnar.
„Endurskoðunin lýtur að skipun stjórnar hátíðar og að umfangi hennar. Engar formlegar athugasemdir hafa verið gerðar við fjármál hátíðarinnar og er ársreikningur hennar í endurskoðun,“ segir í yfirlýsingu Hrannar.
Stefnt er að því að halda tíundu Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík 26. september til 6. október næstkomandi.
Í stjórn Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík munu sitja Baltasar Kormákur kvikmyndagerðarmaður, Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Max Dager, forstöðumaður Norræna hússins, Skúli Valberg Ólafsson framkvæmdastjóri og Hrönn Marínósdóttir, stjórnandi RIFF.