Tónlistarmaðurinn Psy frá Suður-Kóreu ætlar að gefa út nýtt lag í apríl en um er að ræða fyrsta lagið sem hann gefur út síðan smellurinn Gangnam Style tröllreið heimsbyggðinni.
Psy greinir frá þessu í myndbandi á YouTube í dag þar sem hann lýsti áformum sínum á kóreönsku og ensku, með textaþýðingum á sex tungumálum. Hann mun halda stórtónleika í apríl til að fagna útgáfu nýja lagsins sem verður gefið út um allan heim á sama tíma. Verða þeir í beinni útsendingu á YouTube að sögn Psy sem sýndi ný spor á YouTube í myndskeiði dagsins við endurhljóðblandaða útgáfu af Gangnam Style.