Hljómsveitin Vök bar sigur úr býtum í Músíktilraunum í ár þrátt fyrir að hafa einungis verið starfandi frá því í haust. Þau Margrét og Andri Már sem skipa dúettinn hafa verið afar upptekin í símanum frá því að úrslitin voru tilkynnt á laugardaginn og þau svara öllum símtölum í sameiningu.
mbl.is hitti dúettinn í dag.