Bandaríski kvikmyndaleikarinn Charlie Sheen hefur sem kunnugt er verið staddur hér á landi að undanförnu og brá hann sér meðal annars í Bláa lónið eins og svo margir aðrir erlendir gestir sem koma til Íslands til þess að kynnast landi og þjóð.
Sheen birti í kvöld mynd af sér í Bláa lóninu á Twitter-síðu sinni en þar stendur hann í baðsloppi við lónið með bandaríska leikaranum Darius McCrary sem leikur með Sheen í sjónvarpsþáttunum Anger Management.