Leikarinn Charlie Sheen er farinn af landi brott en eins og mörgum er kunnugt hefur hann dvalið hér undanfarna daga. Hann kvaddi Reykjavík á Twitter og þakkaði fyrir gestrisnina en sagði fólki að gæta sín á eldgosum.
„Adios Reykjavík! Þakka þér fyrir nístandi kulda og ævarandi gestrisni. Varið ykkur á eldgosum! c“
Sheen fór í Bláa lónið í gær ásamt vini sínum, leikaranum Darius McCrary, en þeir leika báðir í þáttunum Anger Management.