Margar hljómsveitir og listamenn, bæði íslenskir og erlendir, hafa afboðað komu sína á tónlistarhátíðina Keflavík Music Festival í dag og í kvöld. Flestir eiga það sammerkt að gera athugasemdir við skipulagsmál og samskiptaleysi við skipuleggjendur hátíðarinnar.
Meðal þeirra listamanna sem hafa afbókað sig eru KK, Bubbi, Ensími, SIGN, norska sveitin Röyksopp, Contalgen Funeral, Kiriyama Family og Bloodgroup.
Á hátíðinni áttu að koma fram 129 listamenn á átta tónleikastöðum. Hátíðin stendur frá 5. - 9. júní.