Sífellt fleiri kjósa að setja QR-kóða á legsteina ástvina sinna. Þeir sem heimsækja gröfina geta þannig skannað kóðann með snjallsímum sínum og komist beint inn á sérstaka minningarsíðu um hinn látna.
Lorie og Rick Miller eru frumkvöðlar í þessari grein en þau útbúa kóðana og síðurnar fyrir þá sem vilja að minningin um lifi að eilífu í netheimum.